Réttur dagsins
22.maí
Steikt langa með rótargrænmeti ásamt enoki sveppum kartöflubátum og soðgljáa.

Fólkið á Nauthól


Guðríður María Jóhannesdóttir – Framkvæmdastjóri
Guðríður María útskrifaðist frá Verslunarskóla Íslands vorið 2004. Þar eftir lá leið hennar í viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík en þaðan útskrifaðist hún í janúar 2008 af vörustjórnunarsviði. Frá ellefu ára aldri hefur Guðríður starfað við hlið föður síns í Múlakaffi. Hún hefur kynnst öllum vinklum starfseminnar, allt frá uppvaski, þrifum, smurbrauði, afgreiðslu og aðstoð í eldhúsi að því að byggja upp og stýra rekstrareiningum innan fyrirtækisins.
Hafa samband við Guðríði

Eyþór Rúnarsson – Yfirmatreiðslumaður
Eyþór var lærlingur á Fiðlaranum og fékk sveinsprófið frá Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi árið 2001. Árið 2002 starfaði Eyþór á hinum margrómaða veitingastað Kong Hans Kælder í Kaupmannahöfn. Þá flutti hann sig um set til Sigga Hall á Óðinsvéum og var þar fram til ársins 2008, en frá 2003 – 2008 starfaði hann sem yfirkokkur. 2008 – 2009 var hann yfirkokkur á Ó restaurant. Eyþór hóf störf á Nauthól í janúar 2010 eða frá opnun staðarins. Eyþór hefur verið í kokkalandsliðinu frá árinu 2004 og verið fyrirliði þess síðan í janúar 2009.
Hafa samband við Eyþór

Dagbjört Fjóla Hafsteinsdóttir – Yfirþjónn
Dagbjört Fjóla er algjör reynslubolti úr hótel- og veitingabransanum. Hún lærði hótelstjórnun í Sviss og lauk meistaranámi í Hótel- og veitingaskólanum árið 2008. Hún hefur m.a. unnið sem vaktstjóri og yfirþjónn í ráðstefnu-, veislu- og viðburðadeild hjá stærstu hótelum landsins.
Hafa samband við Dagbjörtu

Sigurður Ívar Sigurðsson – Vaktstjóri
Sigurður Ívar útskrifaðist sem iðnstúdent frá Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi árið 2003 og hafði þá unnið fjögur ár í Perlunni samhliða námi. Eftir námið lá leiðin til Kaupmannahafnar þar sem hann vann til skamms tíma á fransk-ítölskum veitingastað en frá 2005 hefur hann starfað hér heima á Thorvaldsen bar, Sjávarkjallaranum og Maður lifandi. Hann lauk meistaranámi frá Hótel- og matvælaskólanum 2011.
Vilt þú bætast í hópinn?
Ef þú hefur áhuga á að starfa með okkur, endilega sendu okkur línu á atvinna@nautholl.is.